Skip to content

Skilmálar

Skilgreining 

Seljandi er VB Import ehf. (AKM.is), kennitala: 710321-1080, Virðisaukanúmer: 140761
Netfang: akm.netverslun@gmail.com

 

    Lagalegur fyrirvari

    VB Import ehf / AKM.IS, selur hnífa sem eru mjög beittir og eiga aldrei að vera meðhöndlaðir eða notaðir af einstaklingi undir 18 ára aldri. Kaupandi samþykkir að hann skilji og samþykki að það getur verið áhættusamt að nota hníf . Kaupandi sjálfur tekur alla ábyrgð og ábyrgist að varan sé notuð á skynsamlegan hátt samkvæmt lögum.
    VB Import ehf / AKM.IS: - ber ekki ábyrgð á upptækum varningi af löggæslu eða öðrum lögaðilum af neinum ástæðum. VB Import ehf / AKM.IS mun ekki bera ábyrgð á neinum málaferlum gegn kaupanda af hálfu löggæslu eða annarra lögaðila sama af hvaða ástæðum sem er. Allir kaupendur verða að vera 18 ára eða eldri og með því að kaupa vöru frá VB Import ehf / AKM.IS, samþykkir kaupandi að hafa lesið og skilið að fullu alla ofangreinda skilmála. 

    Verð og afhending vöru 

    VB Import ehf / AKM.IS áskilur sér rétt til að hætta við pantanir komi upp villa við verðlagningu eða lagerstöðu. Einnig áskiljum við okkur rétt á að hætta með vöru eða breyta fyrirvaralaust. Verð í vefverslun inniheldur 24% virðisaukaskatt. Sendingarkostnaður bætist við í greiðsluferli. Íslandspóstur sér um sendingar.

    Afhending

    Pantanir á AKM.IS eru sendar næsta virka dag. Komi fyrir að vara sé uppseld munum við hafa samband og tilkynna áætlaðan afhendingartíma. Um allar sendingar sem dreifast af Íslandspósti gilda flutnings-, ábyrgðar og afhendingarskilmálar þeirra. VB Import ehf / AKM.IS ber ekki ábyrgð á skemmdum eða týndum vörum eftir að þær eru komnar í ferli hjá sendanda. Vara sem týnist í pósti eða verður fyrir skemmdum er á ábyrgð kaupanda. 

    Vöruskil

    Réttur til vöruskila er 14 dagar frá kaupum. Nauðsynlegt er að framvísa dagsettum sölureikningi. Eins þarf varan að vera ónotuð í óaðfinnanlegu ásigkomulagi og í óskemmdum umbúðum. Vöru með rofið innsigli er ekki hægt að skila né skipta. Við skil skal miðast við verð við sölu nema um útsöluvöru sé að ræða, þá gildir verð á skiladegi.

    Gölluð vara

    Ef vara er gölluð bjóðum við upp á að henni sé skipt út fyrir nýja. Einnig greiðum við allan kostnað við flutning.  Einnig er hægt að fara fram á að vara sé endurgreidd. Vísað er til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

    Öryggisskilmálar 

    VB Import ehf / AKM.IS heitir fullum trúnaði um allar upplýsingar sem gefnar eru upp í viðskiptum. Engar upplýsingar eru afhentar þriðja aðila. 

    Lög og varnarþing 

    Samningur þessi er í samræmi við Íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Íslenskum dómstólum.